Reglugerð (ESB) nr. 520/2012 er varðar skyldu markaðsleyfishafa lyfja til að halda úti grunnskjali lyfjagátarkerfis
(1409279)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
25.11.2014 | 15. fundur utanríkismálanefndar | Reglugerð (ESB) nr. 520/2012 er varðar skyldu markaðsleyfishafa lyfja til að halda úti grunnskjali lyfjagátarkerfis Formaður gerði grein fyrir áliti velferðarnefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um. |
19.11.2014 | 16. fundur velferðarnefndar | Reglugerð (ESB) nr. 520/2012 er varðar skyldu markaðsleyfishafa lyfja til að halda úti grunnskjali lyfjagátarkerfis Nefndin afgreiddi álit um málið til utanríkismálanefndar. |
29.10.2014 | 11. fundur velferðarnefndar | Reglugerð (ESB) nr. 520/2012 er varðar skyldu markaðsleyfishafa lyfja til að halda úti grunnskjali lyfjagátarkerfis Nefndin fékk á sinn fund Einar Magnússon og Jón Fannar Kolbeinsson frá velferðarráðuneyti og Sindra Kristjánsson frá Lyfjastofnun sem kynntu efni reglugerðarinnar og svöruðu spurningum nefndarmanna. |